Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentur. Stýrivextir eru því komnir ú 7,75% í 8,0%. Þetta er í þriðja sinn sem vextir hafa verið hækkaðir á þessu ári. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.