Bjartviðri í flestum landshlutum

Búast má við vestlægri eða breytilegri vindátt í dag og yfirleitt fremur hægum vindhraða. Í flestum landshlutum verður bjartviðri en við sjávarsíðu á vestanverðu landinu er viðbúið að lágskýjabakki geri sig gildandi.Fyrir norðan gæti þokuloft legið sums staðar fram eftir degi en sólin ætti svo að hafa vinninginn yfir þokunni, segir í hugleiðingu veðurfræðings. Heilt yfir þokkalega milt eins og hefur verið.Á morgun verður svipað veður upp á teningnum en líklega verður útbreiðsla lágskýja eða þokulofts heldur meira áberandi, einkum þó við ströndina.Á föstudag má gera ráð fyrir suðvestlægri vindátt og úrkomu sem fylgir henni. Úrkoman verður ekki mikil en eykst líklega eftir því sem líður á helgina, enda von á lægðum. Fyrir norðan og austan verður bæði þurrast og hlýjast.
Bjartviðri í flestum landshlutum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd