Leita að tímabundnu húsnæði vegna myglu í Dalshrauni

Forstjóri Ráðgjafar- og greiningarstöðvar segir unnið að því að finna tímabundið húsnæði fyrir stofnunina. Henni var lokað fyrr í mánuðinum vegna myglu og þjónustan hefur því verið skert.Stöðin annast meðal annars ráðgjöf og greiningu barna með víðtækar þroskaskerðingar og veitir börnum með flóknar eða sjaldgæfar fatlanir langtímaeftirfylgd. LOKAÐ VEGNA MYGLU FYRR Í MÁNUÐINUM Fyrr í ágúst var húsnæði greiningarstöðvarinnar lokað þegar upp kom mygla. Sigurbjörg Fjölnisdóttir, forstjóri Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, segir lokunina hafa þó nokkur áhrif á starfsemina.„Það að geta ekki tekið á móti þeim hjá okkur býr auðvitað til slæma stöðu vegna þess að þá þurfum við annars vegar að geyma ákveðnar athuganir eða viðtöl sem fara fram í húsnæðinu okkar þar sem við erum meðal annars með sér
Leita að tímabundnu húsnæði vegna myglu í Dalshrauni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd