Mette-Marit á batavegi og fagnar 53 afmælisdeginum

Mette-Marit fagnar 53. afmælisdegi sínum í dag.Skjámynd / NRKNorska krónprinsessan Mette-Marit fagnar 53 afmælisdegi sínum í dag. Norska ríkisútvarpið NRK segir hana á góðum batavegi og að endurhæfing gangi prýðilega eftir að hún var útskrifuð af sjúkrahúsi um miðjan júlí.Þar lá hún eftir lungnaígræðslu mánuði fyrr þar sem hún hafði glímt við illvígan lungnasjúkdóm í átta ár. Búist er við að norski fáninn blakti við hún um gjörvallt land í dag í tilefni afmælis Mette-Marit þótt hirðin hafi greint frá því að konungsfjölskyldan hyggist fagna áfanganum í ró og næði.
Mette-Marit á batavegi og fagnar 53 afmælisdeginum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd