Tæp fjórtán þúsund hafa skráð sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka í ár sem fer fram næsta laugardag. Flestir eru skráðir til að hlaupa tíu kílómetra, eða um tíu þúsund, og svo tæp fjögur þúsund í hálfmaraþon. Rúm tvö þúsund eru skráð í skemmtiskokk og svo um 1.500 í heilt maraþon.