Tilkynnt var í gærkvöld eða nótt um líkamsárás og þjófnað í matvöruverslun í því umdæmi lögreglunnar sem þjónar Kópavogi og Breiðholti.Lögreglukonur á næturvakt í Reykjavík. Mynd úr safni.RÚVHvorki kemur fram í morgunskeyti lögreglunnar hve alvarleg árásin var né hvort einhver hafi verið handtekinn. Ökumaður rafhjóls í Vesturborginni var fluttur með sjúkrabíl á bráðadeild með minni háttar áverka eftir slys.Þar um slóðir var maður handtekinn fyrir fíkniefnasölu. Að öðru leyti greinir lögreglan frá ýmsum afskiptum af ökumönnum í margvíslegu ástandi, þar á meðal einum sem aldrei hafði hlotið ökuréttindi.