Áfrýjunarmál dæmds eiturbyrlara hafið fyrir Hæstarétti

Áfrýjunarmál Erin Patterson hófst fyrir hæstarétti Melbourne-borgar í morgun. Hún var í september dæmd til lífstíðarfangelsis með möguleika á reynslulausn eftir 33 ár fyrir að myrða þrjár manneskjur með Wellington-steik sem innihélt banvæna eitursveppi.Þau voru tengdaforeldrar hennar, Don og Gail Patterson, og roskin frænka eiginmannsins Simonar að nafni Heather Wilkinson. Patterson hlaut einnig dóm fyrir tilraun til að drepa eiginmann frænkunnar, Ian Wilkinson, sem veiktist illa en lifði máltíðina af.Verjendur Patterson vilja að niðurstöðunni verði snúið við enda hefði dómarinn gert mikið úr sakleysislegum og lítt áreiðanlegum gögnum í málinu á borð við færslur hennar um að hafa séð banvæna sveppi og staðsetningu hennar út frá farsímamöstrum. Að Patterson hafi verið látin svara spurningum
Áfrýjunarmál dæmds eiturbyrlara hafið fyrir Hæstarétti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd