Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að fresta því um þrjá daga að 50 prósenta tollur verði settur á fjölda kanadískra vara sem fluttar eru til Bandaríkjanna.Trump greindi frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlum í nótt eftir tvo fundi með kanadíska forsætisráðherranum Mark Carney. Forsetinn segir þeim viðræðum ekki lokið þótt allt stefni í samkomulagsátt og skrifstofa Carney tekur undir það. Frestur til að ná samningum rann út í nótt að íslenskum tíma.Trump boðaði tollana fyrir tæpum mánuði með þeim rökum að stjórnvöld í Kanada hefðu beitt innflytjendur bandarískra vara óréttlæti og mismunun, þar á meðal hvað snertir álagningu á bíla, áfengi og mjólkurvörur.Boðaðir voru nýir tollar á vörur undir vernd fríverslunarsamnings landanna tveggja auk Mexíkó en að tollar yrðu óbreyttir á vörur