„Ég er staddur í Eymundsson og til mín kemur maður sem ég þekkti frá fornu fari sem sagði mér að faðir hans hefði tengst þessum hópi. [...] Og að hann hefði stundum, þegar hann hafi verið í glasi, sagt sér frá því að hann hefði verið í hópi manna sem að hefðu farið að Stúdentagörðunum og brennt þar kross af því að á Stúdentagörðunum var staddur svartur maður,“ segir rithöfundurinn Sigurjón Birgir Sigurðsson, eða Sjón eins og hann er kallaður. Hann vísar þarna til þess hvernig hann heyrði fyrst um söguna af veru Suður-Afríkumannsins Johannesar Manong á Íslandi 1964 og 1965.Sjón fékk ábendingu um sögu Manongs eftir að hann gaf út skáldsöguna Korngult hár, grá augu árið 2019, kannaði hana sjálfur og kom sögunni svo á framfæri við fjölmiðla. Í bókinni fjallar Sjón um nýnasistasellu sem var sta