Mohammad Mokhber segir samningaviðræður ekki jafngilda uppgjöf.EPA / SERGEI SAVOSTYANOV / SPUTNIK / KREMLIN POOLÍranar segjast reiðubúnir til áframhaldandi friðarviðræðna við Bandaríkin. Ekki megi þó rugla viðræðum saman við uppgjöf að sögn Mohammads Mokhber, sitjandi forseta og eins helsta ráðgjafa æðsta leiðtogans Mojtaba Khamenei. Hálfopinbera fréttaveitan Fars greinir frá þessu. Í gær sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti engar viðræður standa yfir við Írani og að þær stæðu ekki til.