Rússnesk stjórnvöld segjast ekki hafa nokkurn áhuga á afskiptum af þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Vísir greindi frá þessu í nótt og vísar til yfirlýsingar sem rússneska sendiráðið í Noregi birti opinberlega vegna fyrirspurnar dagblaðsins Aftenposten. Þar segir að Rússar leitist ekki við að hafa áhrif á innanríkismál annarra landa og ætli sér ekki að hafa áhrif á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Sendiráðið sakar hins vegar Evrópusambandið sjálft um að reyna að hafa áhrif á hana. „VIÐREISNARBOTTARNIR“ VEKJA UGG Vísir segir Aftenposten hafa fjallað um atkvæðagreiðsluna og svokallaða „Viðreisnarbotta“, gervigreindarþjarka sem höfðu uppi gagnrýni á forstjóra Vélfags undir Facebook-færslu hans og færslum Viðreisnar ásamt því að