Ásgerður Ragnarsdóttir verður skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. Dómsmálaráðherra hefur lagt þetta til við forseta Íslands eftir að nefnd um hæfni umsækjenda sagði í júní ekki hægt að gera upp á milli þeirra fjögurra sem sóttu um laust dómarasæti við Hæstarétt.Þau eru öll Landsréttardómarar, auk Ásgerðar þeir Aðalsteinn E. Jónasson, Eiríkur Jónsson og Eyvindur G. Gunnarsson. Þorbjörg S. Gunnarsdóttir dómsmálaráðherra gat því sjálf valið á milli umsækjenda og ákveðið hver þeirra yrði skipaður hæstaréttardómari.Ásgerður starfaði sem lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu í eitt og hálft eftir að hún lauk laganámi frá Háskóla Íslands 2004. Hún hlaut réttindi sem héraðsdómslögmaður árið eftir og fyrir Hæstarétti fyrir tíu árum.Ásgerður var a