Donald Trump Bandaríkjaforseti vill hitta norðurkóreska leiðtogann Kim Jon Un helst ekki síðar en í haust að því er segir í umfjöllun The Wall Street Journal. Blaðið segir forsetann vilja koma á samkomulagi um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu við Kim og að hann hætti algerlega við öll áform um að styrkja kjarnorkuvopnabúr landsins.Þetta yrði fjórði fundur þeirra. Trump vísaði á sunnudag til einstaks vinasambands síns við Kim Jong Un þegar hann fyrirskipaði að dregið yrði úr umfangi sameiginlegrar heræfingar með Suður-Kóreu. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, hefur lagt ríka áherslu á að auka sjálfstæði hers landsins.Yfirmenn herafla Suður-Kóreu ákváðu að stytta heræfinguna fyrir sitt leyti eftir að Trump ákvað að minnka umfang hennar. Æfingin hófst á sunnudaginn var og lýkur á föstudag, samkv