Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016.