Íslendingar eyða sífellt meira erlendis

Nýjar tölur Landsbankans sýna að neysla Íslendinga færist í auknum mæli úr landi, en ríflega fjórðungur af allri neyslu landsmanna fór fram erlendis í júlí síðastliðnum. Hlutfallið var komið í 26,5% og hefur það aldrei mælst hærra.Alls jókst kortavelta Íslendinga erlendis um 8,5% að raunvirði á milli ára í júlí. Þessi aukna eyðsla erlendis er hluti af stærri þróun, en frá áramótum hefur mánaðarleg kortavelta landsmanna erlendis aukist um að jafnaði 14% að meðaltali. Á sama tíma hefur kortavelta innanlands dregist saman næstum alla mánuði ársins.Aukin erlend netverslun vegur þungtFærri ferðamenn sóttu Ísland heim í júlí en á sama tíma í fyrra, eða sem nemur 3,1% fækkun samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Þrátt fyrir það jókst eyðsla erlendra gesta hér á landi um 3,9% á föstu gengi, sem þýðir að
Íslendingar eyða sífellt meira erlendis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd