Þrátt fyrir að skýjahula hafi aðeins spillt upplifun þegar sólmyrkvi gekk yfir landið í síðustu viku var stundin engu að síður eftirminnileg. Til að tryggja að upplifunin varðveitist um ókomna tíð hefur Þjóðminjasafnið hafið söfnun á frásögnum landsmanna, bæði af myrkvanum í ár og síðasta almyrkva sem var árið 1954.Sigurlaug Dagsdóttir, þjóðháttafræðingur hjá Þjóðminjasafninu, segir hugmyndina hafa kviknað þegar fólk fór ósjálfrátt að rifja upp myrkvann frá 1954 í aðdraganda þess nýlegasta.„Þá datt okkur í hug að það væri um að gera að safna þeim frásögnum og minningum þar sem að það fólk er að verða fullorðið og við vildum ná þessu áður en það fenndi fyrir þessar minningar.“Þótt ýmis gögn séu til um myrkvann 1954 hefur persónulegri reynslu fólks og upplifunum aldrei verið safnað með þessu