Spænski listamaðurinn Juan Arctic, sem búsettur hefur verið á Íslandi í áratug, hefur sett sérstakan og litríkan svip á Reykjavíkurborg og nágrenni með útilistaverkum sínum. Juan, sem er með menntun í myndlist frá heimalandi sínu, hefur málað fjölda þekktra veggverka sem vekja athygli og kæta vegfarendur.Þekktasta verk hans er Super Mario Bros-veggmyndin við Hofsvallagötu, sem hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum og orðið að vinsælum viðkomustað ferðamanna. Meðal annarra áberandi verka Juans má nefna gaflinn við Tjarnarbíó, risaeðlur á Laugavegi, og gafl við Strandgötu í Hafnarfirði sem vísar í íslenska listasögu.Juan segir íslenska náttúru og dýralíf vera í miklu uppáhaldi, en aðalástæða hans fyrir verkunum sé einföld: „Markmið mitt er fleiri litir í Reykjavík.“