Æfingin er kölluð Norður-Víkingur og er haldin á Íslandi annað hvert ár að jafnaði.Æfingin verður tvískipt. Bandaríkin ætla að æfa viðbragð við vaxandi ógn á grundvelli varnarsamningsins og viðbrögð eftir virkjun fimmtu greinar bandalagsins. Samkvæmt henni jafngildir árás á eitt aðildarríki árás á þau öll.Auk Íslendinga og Bandaríkjamanna taka Norðmenn, Svíar, Danir, Finnar, Þjóðverjar, Frakkar og Kanadamenn þátt í æfingunni.„Þetta er svo mikilvægt, við lifum á víðsjárverðum tímum. Enginn okkar getur gert þetta á eigin spýtur,“ segir Alexus G. Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins.Grynkewich segir sérstaklega mikilvægt að leggja áherslu á norðurskautið – þar sem andstæðingar NATO geri sig gildandi.„Í dag eru meint rannsóknarskip Rússlands og Kína í sameiginlegum eftirlitsfer