Erlendum manni um þrítugt hefur verið birt ákæra í Lögbirtingablaðinu þar sem honum eru gefin að sök alls 46 þjófnaðarbrot, 45 búðarþjófnaðir og ein þjófnaðartilraun. Brotin voru framin á nokkurra mánaða tímabili, frá því í desember 2024 og inn í marsmánuð 2025.