Reykholtsmálið: „Ég hef ekki ímyndunarafl í svona ofbeldi“

Þrír menn gáfu skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð Reykholtsmálsins í dag. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.Á meðal hinna ákærðu eru Andri Már Mortensen Birgisson, unnusta hans og tengdafaðir. Tengdafaðirinn er einn þeirra sem gáfu skýrslu fyrir dómi.Í ákæru segir að það hafi verið að undirlagi tengdaföðurins að ráðist hafi verið í umrædda rukkun sem hafi leitt af sér atburðarásina sem á eftir fylgdi. Hann hafi einnig hótað og ógnað brotaþola. BYRJAÐI Á ÞVÍ AÐ LESA FRÁSÖGN SÍNA UPP ÚR BÓK EN VAR STOPPAÐUR Tengdafaðir Andra gaf skýrslu fyrir dómi eftir hádegishlé. Frásögn hans fór ekki af stað án vandræða þar sem hann byrjaði
Reykholtsmálið: „Ég hef ekki ímyndunarafl í svona ofbeldi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd