Spencer jarl, bróðir Díönu prinsessu, hefur tilkynnt um útgáfu nýrrar bókar um líf hennar sagða frá sjónarhorni hans. Bókin kemur út í Bretlandi í næsta mánuði, 29 árum eftir að hún lést í bílslysi í París. VILL TJÁ SIG Á JÁKVÆÐAN HÁTT FYRIR HÖND SYSTUR SINNAR Bókin heitir Svanasöngur: Díana, systir mín. Spencer segist vilja tjá sig fyrir hönd systur sinnar á opinn og jákvæðan hátt. Hann voni að bókin fái fólk til að skilja hver hún hafi verið í raun og veru.„Einstök, kraftmikil persóna, full af ást, persónutöfrum og sjálfsefa sem gaf allt í lífið og yfirgaf heiminn sem miklu betri stað, þrátt fyrir að yfirgefa sviðið mjög ung,“ sagði Spencer í yfirlýsingu í tilefni af nýju bókinni í dag.Díana prinsessa lést ásamt unnusta sínum, Dodi Fayed, í bílslysi í París 31. ágúst 1997. Hún hefði o