Hvalfjarðargöngum var lokað um hríð í kvöld vegna bíls sem kviknaði í. Búið er að ráða niðurlögum eldsins og opna fyrir umferð um göngin. Engin slys urðu á fólki vegna eldsins.Bíllinn var staddur Akranesmegin í Hvalfjarðargöngunum og þar af leiðandi á starfssvæði Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri segir að útkall vegna eldsins hafi borist klukkan 19:06.„Við sendum dælubíl í verkefnið en þeir náðu nú að slökkva eldinn, þeir sem voru ofan í göngunum. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig það var en þegar við komum á svæðið var búið að slökkva eldinn.“ segir Jens. Hann segir að engin hætta hafi verið á ferð.Slökkvilið er enn að störfum á vettvangi við að þrífa svæðið og koma bílnum út úr göngunum.Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk einnig útkall