Röntgenlæknirinn Halldór Benediktsson trónir á toppi listans yfir tekjuhæstu lækna og tannlækna landsins með ríflega sex milljónir á mánuði árið 2025. Fast á hæla honum koma svo skurðlæknirinn Jón H. H. Sen og yfirlæknirinn Súsassa B. Ástvaldsdóttir með hvor sínar tæplega sex milljónirnar á mánuði í fyrra. Ofarlega á listanum er að finna heimilslækna, þyrlulækna, geðlækna og svæfingalækna.