Tilkynningar um vasaþjófnað á hverjum degi en ferðamenn grunlausir

Lögregla fær tilkynningar um vasaþjófnað nánast á hverjum degi yfir sumartímann. Erlendir glæpahópar eru í flestum tilvikum að verki, og meðlimir þeirra koma gagngert til að láta greipar sópa.Á árum áður gat fólk valsað nokkuð áhyggjulaust með bakpoka og veski um vinsælustu ferðamannastaði landsins.Í sumar hefur lögreglan skráð að jafnaði eina tilkynningu um vasaþjófnað á dag, þótt þær séu suma daga miklu fleiri. Ferðamenn greina frá því að vera skyndilega án kortaveskis, peninga eða annarra verðmæta.Vasaþjófar hafa látið greipar sópa víða um land í sumar og ekkert lát á tilkynningum til lögreglu. Ferðamenn við Goðafoss í dag sögðust almennt hafa litlar áhyggjur af eigum sínum á ferð um Ísland.Tilkynningarnar eru iðulega flestar úr miðborg Reykjavíkur, og eins kemur mikið frá fjölsóttustu
Tilkynningar um vasaþjófnað á hverjum degi en ferðamenn grunlausir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd