29 Bandaríki hafa höfðað mál gegn tæknirisanum Meta, móðurfyrirtæki Facebook og Instagram. Réttarhöld hefjast í dag og gætu orðið til þess að breytingar verði gerðar á samfélagsmiðlunum til frambúðar. RÉTTARHÖLDIN GÆTU TEKIÐ SEX TIL ÁTTA VIKUR Réttarhöldin eiga rætur að rekja til málshöfðunar frá 2023. Þar héldu 29 ríki, þar á meðal Kalifornía og New York, því fram að tæknifyrirtækið hefði brotið fjölmörg alríkis- og ríkislög um friðhelgi einkalífs barna.Í málsókninni, sem er rúmlega tvö hundruð blaðsíður, saka ríkin Meta um að safna reglulega gögnum um börn undir 13 ára aldri án leyfis foreldra. Það brjóti bæði á alríkislögum og lögum ríkjanna sjálfra.Ríkin segja tæknirisann neita að hætta að nota þekkta skaðlega eiginleika og að hvatinn byggist eingöngu á hagnaði til að hámarka fjárha