Enginn dýralæknir frá Kirkjubæjarklaustri að Breiðdalsvík

Frá 16. ágúst er enginn dýralæknir að störfum frá Breiðdalsvík í austri, að Kirkjubæjarklaustri í suðri. Staðan er grafalvarleg, segir kúabóndi á svæðinu.„Við erum náttúrulega bara háð því, við og aðrir bændur, að geta leitað dýralækninga þegar dýrin eru veik. Það er náttúrulega grafalvarleg staða gagnvart dýrunum að geta ekki fengið læknisþjónustu eins og við,“ segir Birgir Freyr Ragnarsson, kúabóndi í Flatey á Mýrum í Hornafirði.Hann segir að bændum sé bent á að leita til dýralækna uppi á Héraði eða á Suðurlandi. Birgir er með ríflega 200 kýr á bænum. Hann segir mikinn landbúnað og mörg gæludýr á svæðinu. Þessi óvissa sé mjög óþægileg fyrir íbúa. SEXTÁN ÞÚSUND FYRIR SEXTÁN TÍMA Staðan kemur ekki á óvart, segir Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands. Kerfið var sto
Enginn dýralæknir frá Kirkjubæjarklaustri að Breiðdalsvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd