Almannavarnir aflýsa óvissustigi í Öskju

Almannavarnir ríkislögreglustjóra hafa í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra aflýst óvissustigi vegna landriss í Öskju. Fréttir bárust af því fyrir helgi að samkvæmt nýjustu mælingum væri landris hætt og merki um að landið væri tekið að síga.Árið 2021 var óvissustig sett á sökum landriss við Öskju og voru merki um óróa á svæðinu. Frá því að landrisið hófst hefur landið risið um 60 sentímetra. Askja gaus síðast árið 1961.Í tilkynningu frá almannavörnum segir:„Nýjustu mælingar benda til þess að landrisi í Öskju, sem hófst árið 2021, sé nú lokið. Fyrstu merki eru um að land á svæðinu sé farið að síga á ný og bæði gasmælingar og skjálftavirkni benda til eðlilegs ástands.Niðurstöðurnar byggja á vettvangsvinnu vísindamanna Veðurstofu Íslands og Háskólans í Gautaborg sem lauk í síðu
Almannavarnir aflýsa óvissustigi í Öskju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd