Fulltrúar meirihlutans í velferðarráði Reykjavíkurborgar hafa samþykkt tillögu um að hækka verð á máltíðum og heimsendum mat í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum frá og með 1. september. Með tillögunni er einnig lögð til einföldun gjaldskrár veitinga og fæðis fyrir árið 2026.Þetta kemur fram í fundargerð velferðarráðs frá 13. ágúst. Tillagan verður lögð fyrir borgarráð á fimmtudag en þá ræðst hvort af breytingunum verði. VERÐHÆKKUNIN ER Á BILINU 43% TIL 72% Lagt er til að almennt verð fyrir aðra en lífeyrisþega hækki úr 1.915 krónum í 2.387 krónur. Verð fyrir lífeyrisþega hækki úr 1.100 krónum og 1.190 krónum í 1.900 krónur.Þá er jafnframt lagt til að gjald vegna aksturs heimsendra máltíða og fast fæði/matarmiðar verði lagt niður og innifalið í nýrri gjaldskrá. Eitt verð verði fyrir all