Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir Breta vera til staðar fyrir Úkraínumenn þegar þeir þurfa á því að halda og það breytist ekki. Rússar hótuðu afleiðingum vegna dróna, sem framleiddir voru í Bretlandi, og voru notaðir í loftárásum Úkraínu á Rússland.Rússneska sendiráðið sagði í tilkynningu í morgun að Bretar hafi „vísvitandi stigmagnað Úkraínudeiluna“ og bætti því við að því dýpri sem þáttaka Breta í átökunum sé því hærra verð greiði þeir.Burnham var spurður út í hótanir Rússa. Hann sagði Bretland veita Úkraínu stuðning til að verja sig.„Það hefur verið afstaða Breta alla tíð í þessum átökum, meðal fyrrverandi forsætisráðherra og það er enn raunin hjá mér.“Bretar standi ekki aðeins með Úkraínumönnum á friðartímum. „Við erum til staðar fyrir Úkraínumenn þegar þeir þurfa mest á