100 ára afmæli tombólu fagnað á Grímsævintýrum á Borg í Grímsnesi

Það stendur mikið til á Borg í Grímsnesi því þar er verið að undirbúa sveitahátíðina Grímsævintýri sem verður laugardaginn 22. ágúst. Á hátíðinni verður meðal annars 100 ára afmæli tombólu Kvenfélags Grímsness fagnað þar sem 3.000 vinningar verða í boði og enginn núll.Kvenfélagskonur í Kvenfélagi Grímsness eru á fullu þessa dagana að undirbúa Grímsævintýri á Borg í Grímses- og Grafningshreppi, sem haldin verður næsta laugardag, 22. ágúst.Það verður sérstaklega hátíðlegt um að litast þennan dag því tombólan á Borg fagnar 100 ára afmæli, en þessi einstaka sveitahefð á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1926. „GJÖF SEM GEFUR“ „Ég myndi segja að það væri ágætis sveifla og öll innkoma rennur óskert til góðra málefna, þannig að þetta er bara gjöf sem gefur”, segir Laufey Guðmundsdótti
100 ára afmæli tombólu fagnað á Grímsævintýrum á Borg í Grímsnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd