Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ásgerður Ragnarsdóttir verði skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026. Hún var einn fjögurra Landsréttardómara sem sóttu um embættið og voru metnir jafnhæfir til að hljóta skipun.