Greiningardeild Arion banka spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um 0,25% á morgun og segir forsendur kjarasamninga að öllum líkindum brostnar. Verðbólga hafi aukist frá síðasta fundi nefndarinnar og horfurnar síst batnað.Spurningin sé því ekki hvort heldur hversu mikið stýrivextir verði hækkaðir á morgun.„Við spáum því að nefndin kjósi að hækka vexti um 25 punkta í þeirri von að aukið taumhald peningastefnunnar muni koma böndum á verðbólguna og verðbólguvæntingar.“Vextir voru hækkaðir í mars og sagði peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að hún væri reiðubúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.Mótun peningastefnunnar myndi þó sem fyrr ráðast af þróun efn