Héðinsfjarðargöng voru tekin í notkun 2010. Fljótlega kom í ljós vatnsleki Ólafsfjarðarmegin. Lekinn hefur valdið íbúum Fjallabyggðar töluverðum óþægindum. Vegstikur í göngunum eru þaktar drullu og bílar verða mjög skítugir þegar ekið er í gegn.„Það má segja það að þeir sem eru á ferðinni milli bæja, eiga ferð daglega til vinnu og ekki síst svona eins og skólarútan eða aðrir stórir bílar sem fara reglulega í gegn – þeir gera ekkert annað en að þvo bílana eftir ferð í gegnum göngin. Auðvitað á þetta ekkert að vera svona,“ segir Helgi Jóhannsson, formaður bæjarráðs Fjallabyggðar. RÍFLEGA FJÖGUR HUNDRUÐ UNDIRSKRIFTIR Helgi tók á móti undirskriftarlista frá Hjördísi Hjörleifsdóttur, íbúa í Fjallabyggð, þar sem íbúar skora á Vegagerðina að gera eitthvað í lekanum. Bæjarstjóra Fjallabyggðar v