Gavin Wood, forstjóri Coloplast, segir þær áskoranir sem Kerecis hafi staðið frammi fyrir á árinu fyrst og fremst skýrast af breytingum á endurgreiðslukerfi Medicare í Bandaríkjunum. Langtímatækifærin á markaði fyrir sárameðferð séu hins vegar áfram mikil og Coloplast hafi áfram trú á stöðu Kerecis á markaðnum.