Kostnaður við innleiðingu símafrís í grunnskólum Reykjavíkurborgar gæti numið allt að 75 milljónum króna. Er þetta meðal annars kostnaður sem fellur til vegna skápa, hólfa, geymslukassa, eftirlits og verklags.Þetta kemur fram í svari Steins Jóhannssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs borgarinnar, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins.Reykjavíkurborg hefur boðað símafrí sem tekur gildi í grunnskólum í haust auk þess sem mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. ALLT AÐ 50 MILLJÓNIR FYRIR SKÁPA Í svarinu við fyrirspurninni segir að borgin geri ráð fyrir að verulegur kostnaður geti fylgt því fyrir einstaka skóla að koma upp fullnægjandi aðstöðu fyrir geymslu tækja.Áætlað er að i