Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fer fram í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga takast á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar.