Maður á fimmtugsaldri er í haldi lögreglu í Tromsø í Norður-Noregi, grunaður um að hafa myrt annan, á áttræðisaldri, í nótt. Frá þessu greinir Trude Kvanli ákæruvaldsfulltrúi lögreglu í fréttatilkynningu og segir lögreglu nú rannsaka málið auk þess sem tæknideild sé við störf á vettvangi.