Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu svokallaða heldur áfram í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Hún hófst í gær þegar spilaðar voru upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar. Hann er einn af sex sem eru ákærð fyrir að frelsissvipta mann í Reykholti í apríl 2024, fjárkúga hann og beita margþættu ofbeldi.Upptökurnar voru alls um þrjár klukkustundir og ná yfir um vikutímabil. Meðal þess sem heyrist eru símtöl þar sem Andri segir: „Ég er bara í miðri frelsissviptingu“ og „Ég er alvarlega að hugsa um að frelsissvipta einhvern og ræna.“Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er fordæmalaust að svo nákvæm gögn séu til við meðferð sakamála hér á landi.