Bláberin bústin en krækiberin láta síður á sér kræla

Berjatímabilið er hafið og bláberin virðast víða spretta vel. Erfiðara getur þó reynst að krækja sér í krækiber í ár. HVER Á SINN LEYNISTAÐ Um miðjan ágúst hafa ber víða náð fullum þroska og fólk er farið að leita sér að góðum stöðum til að tína. Margir eiga sér uppáhaldsstað eða jafnvel góðan leynistað.Í Facebook-hópnum Berjavinum deilir fólk gjarnan upplýsingum um berjalönd. Þegar spurt er um nákvæma staðsetningu á því hvar bestu sprettuna sé að finna er færra um svör. Það getur nefnilega verið svolítið leyndarmál.Eitt er þó ljóst af umræðunni: víða um land virðist lítið um krækiber að þessu sinni.„Ég er nú rétt að byrja að skoða þetta af alvöru og mér sýnist þetta koma vel út í ár að mörgu leyti. Það er náttúrlega dásamlegt að vera úti í náttúrunni og vera í berjamó, ekkert yndislegr
Bláberin bústin en krækiberin láta síður á sér kræla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd