Nýja Suður-Wales verður fyrsta ástralska ríkið sem kaupir skotvopn af almenningi. Danska ríkisútvarpið greinir frá.Forsætisráðherrann Anthony Albanese kynnti þetta fyrirkomulag á blaðamannafundi á sunnudag. Þetta er liður í því að herða skotvopnalöggjöfina í landinu og draga úr skotvopnaeign almennings í Ástralíu eftir að tveir menn myrtu 15 í skotárás á Hanukkah, hátíð gyðinga á Bondi-strönd í Sydney í desember. Endurkaup hins opinbera ná til umframmagns af skotvopnum auk ólöglegra skotvopna og þeirra sem hafa nýlega verið bönnuð.Frá og með 2. nóvember geta byssueigendur skilað inn skotvopni sínu og fengið allt að eitt þúsund ástralska dollara, eða um 87.000 íslenskar krónur, fyrir hvert vopn sem þeir láta af hendi. Vopnin verða skráð og þeim eytt af yfirvöldum. Greiðslurnar verða fjármag