Breskir drónar notaðir til langdrægra árása á Rússland

Stjórnvöld í Rússlandi vöruðu Breta við því í gær að þeir myndu gjalda fyrir drónaárásir með drónum sem framleiddir voru í Bretlandi en notaðir í árásum Úkraínumanna í Rússlandi.The Sunday Times greindi frá því um helgina að tvö bresk fyrirtæki hefðu framleitt dróna sem hefðu verið notaðir í Kyiv til langdrægra árása á hernaðarlega innviði og iðnaðarbyggingar í Rússlandi.Í tilkynningu sem rússneska sendiráðið í London sendi frá sér saka Rússar Bretland um að vera í vitorði og samverknaði með Úkraínu og hafa viljandi stigmagnað átökin. Þeim mun meiri sem þátttaka Breta er í átökunum og stuðningur, þeim mun meira þurfa þeir að gjalda fyrir það, segir í yfirlýsingunni.Samkvæmt The Sunday Times er annað fyrirtækjanna sem framleiðir drónana dótturfélag vopnaframleiðandans BAE Systems. Dagblaðið
Breskir drónar notaðir til langdrægra árása á Rússland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd