Lettneskt landamæraskilti á landamærum Lettlands og Belarús. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / VALDA KALNINADróninn sem orrustuþotur skutu niður í Lettlandi á föstudaginn flaug inn í lettneskt loftrými frá Belarús. Varnarmálaráðherra Lettlands, Raivis Melnis, greindi frá þessu í viðtali í lettneska ríkissjónvarpinu í gær.Brak drónans fannst í Balvi-héraði í norðausturhluta Lettlands og sérfræðingar vinna nú að því að greina uppruna hans. Talið er líklegt að dróninn sé úkraínskur og Rússar hafi truflað flug drónans og sent hann af leið.Melnis sagði að drónar sem fljúgi inn í lettneskt loftrými verði skotnir niður enda sé það öryggismál fyrir íbúa og eignir þeirra.