Krakkar sækja kennslustundir í tjaldi nærri Urimare-skólanum í Catia La Mar í Venesúela 5. ágúst sl.EPA / MIGUEL GUTIERREZStjórnvöld í Venesúela segja að 6.438 hafi farist í jarðskjálftunum tveimur í júní. Björgunarfólk og almenningur leitar enn látinna í rústunum. Að minnsta kosti 190 byggingar gjöreyðilögðust í skjálftunum sem voru 7,2 og 7,5 að stærð.Yfirvöld segja að um 24.000 heimili séu óíbúðarhæf en um 60.000 heimili urðu fyrir áhrifum skjálftanna með einhverjum hætti.Þúsundir íbúa búa í tímabundnum tjaldbúðum en settur forseti í bráðabirgðastjórn landsins, Delcy Rodriguez, hefur lofað því að fólki verði útvegað varanlegra húsnæði. Fram til þessa hefur 335 heimilum verðið úthlutað af þeim 4.000 sem bráðabirgðastjórnin hefur lofað fyrir lok þessa árs.