„Víti er 0.76 í Xg á meðan mark er bara mark“

„Við eigum að klára þennan leik miðað við færi og stöður sem við fengum hérna í síðari hálfleik. Það er ekki spurning,“ sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir 2-2 jafntefli gegn HK í Lengjudeildinni í kvöld. Afturelding fékk urmul færa ásamt því að brenna af vítaspyrnu. Vítið var dæmt í kjölfar þess að Aron Kristófer Lárusson, leikmaður HK, fékk boltann í hendina á marklínu HK. „Auðvitað svíður það. Síðan ver hann með hendi á línu. Væntanlega var hann að bjarga marki. Spurning hvort að þetta sé rautt spjald eða hvað. Þeir allaveganna hagnast á því þarna að boltinn fari í hendina í stað þess að hann fari í markið.“
„Víti er 0.76 í Xg á meðan mark er bara mark“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd