Brottvísun fanga atlaga að réttarríkinu eða réttlætanlegt neyðarúrræði

Yfir 20 erlendum föngum, þar á meðal morðingja, hefur verið sleppt snemma úr íslenskum fangelsum, þeim vísað úr landi og meinuð endurkoma. Ástæðan er bráður vandi og viðvarandi plássleysi í fangelsum landsins, en gert er ráð fyrir að álíka fjöldi fanga bíði sömu meðferðar.Málið hefur vakið upp heitar umræður á Alþingi. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir úrræðið réttlætanlegt sem tímabundna neyðarlausn.„Það má alveg velta því fyrir sér hvort að það sé nægilegt en við getum líka velt því fyrir okkur hvenær afplánunartíminn er orðinn nægilegur þegar það er á annað borð möguleiki að fá reynslulausn,“ segir Grímur og bætir við að með þessu hafi samfélagið verið að losa sig við hættulegan mann.Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, er ósammála Grími og gagnrýnir lögin harðlega.„
Brottvísun fanga atlaga að réttarríkinu eða réttlætanlegt neyðarúrræði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd