Þjóðin les eða hlustar að meðaltali á 2,4 bækur á mánuði og ver um 30-60 mínútum á dag í lestur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun á lesvenjum Íslendinga sem Miðstöð íslenskra bókmennta stóð fyrir og birti í morgun.30% þjóðarinnar les hefðbundnar bækur vikulega, en hljóðbækur hafa sótt mikið á milli ára og hlusta nú 27% þjóðarinnar á hljóðbækur vikulega eða oftar. Á undanförnum sex árum hefur notkun hljóðbóka aukist um 145% og lestur bóka dregist saman um 17%. VIÐSKIPTAMÓDEL SEM GENGUR EKKI UPP Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins, segir í samtali við fréttastofu að streymi hljóðbóka sé að grafa undan hefðbundinni bókasölu.„Þar eru auðvitað mikið meiri tekjumöguleikar fyrir höfunda. Þannig að þetta er erfið staða að miklu leyti fyrir okkur, en náttúrulega líka