Gylfi Þór Sigurðsson náði Ásgeiri Sigurvinssyni. Hallgrímur Mar Steingrímsson fór fram úr Herði Magnússyni. Viktor Jónsson komst í fámennan hóp með nokkrum af helstu goðsögnum Skagamanna. Þetta var meðal þess sem gerðist í afar viðburðaríkri 19. umferð Bestu deildar karla sem lauk með tveimur leikjum í kvöld. Tryggvi Hrafn Haraldsson, Viktor Örn Margeirsson, Erik Tobias Sandberg, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Emil Atlason og Kjartan Kári Halldórsson náðu allir áföngum á sínum ferli í 19. umferðinni. Allt um það hér fyrir neðan. Úrslitin í 19. umferð: Þór - Keflavík 0-2 KR - Breiðablik 3-3 FH - Víkingur 2-4 ÍBV - ÍA 1-3 Valur - KA 4-4 Fram - Stjarnan 3-1 Staðan: Víkingur 48, KR 40, Fram 40, Breiðablik 30, ÍA 25, Keflavík 25, Valur 23, Stjarnan 21, ÍBV 17, FH 17, KA 16, Þór 15.