Guðlaugur Arason, rithöfundur og listamaður, var að opna sýningu í Gallerý Listaseli í nýja miðbænum á Selfossi þar sem hann sýnir mjög óvenjuleg verk – örsmáar álfabækur. Við opnunina spiluðu þeir Jón Rafnsson á kontrabassa og Björn Thoroddsen á gítar.„Þegar ég byrjaði á þessum bókum þá var ég að skrifa skáldsögu sem fjallaði um álfa og menn. Ég tók mér frí frá því vegna þess að ég þurfti að flytja bókasafnið mitt. Ég var að flytja á milli landa og flytja fjögur þúsund bindi af bókum og ég sagði þá við sjálfan mig: Gulli, er ekki hægt að minnka bókasafnið þitt niður einhvern veginn þannig að þú getir farið með það í flugvélinni án þess að borga yfirvigt?” segir Guðlaugur.En hvernig fer Guðlaugur að því að hafa bækurnar svona smáar?„Ég tek hverja bók og skanna hana þrisvar sinnum, það er s