Fram vann Stjörnuna 3-1 í lokaleik 19. umferðar Bestu deildar karla í Úlfarsárdal.Róbert Hauksson kom Frömurum yfir á 12. mínútu en Emil Atlason jafnaði á 34. mínútu. Róbert skoraði annað mark sitt og annað mark Fram á 39. mínútu og heimamenn leiddu 2-1 í hálfleik.Framarar fagna markiRÚV / Mummi LúMár Ægisson skoraði eftir vel útfærða skyndisókn á 62. mínútu og tryggði Fram 3-1 sigur.Fram er áfram í þriðja sæti deildarinnar, með 40 stig líkt og KR en lakari markatölu. Liðin eru 8 stigum frá toppliði Víkinga. Stjarnan er í 8. sæti með 21 stig.Fyrr í kvöld gerðu Valur og KA 4-4 jafntefli.