Fyrstu mörk Pedersen komu í átta marka jafntefli

Valur og KA mættust í 19. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Liðin skildu jöfn, 4-4, í æsispennandi leik.KA-menn voru sterkari aðilinn framan af og Jakob Snær Árnason kom þeim yfir á fimmtu mínútu. Hallgrímur Mar Steingrímsson tvöfaldaði forystuna á 16. mínútu áður en Hólmar Örn Eyjólfsson minnkaði muninn á 21. mínútu.Jakob Snær skoraði annað mark sitt á 39. mínútu og sá til þess að gestirnir væru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 1-3. FYRSTU MÖRKIN DÝRMÆT Patrick Pedersen sem er tiltölulega nýkominn til baka eftir löng meiðsli skoraði fyrsta mark sitt á tímabilinu á 61. mínútu og svo annað mark sitt sex mínútum síðar og allt orðið jafnt, 3-3.Hallgrímur Mar kom KA aftur yfir á 78. mínútu en aftur jöfnuðu Valsarar, nú skoraði Tryggvi Hrafn Haraldsson á 83. mínútu.Bæði lið fengu færi til þ
Fyrstu mörk Pedersen komu í átta marka jafntefli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd